Meistaradeild Cintamani
Þá eru ráslistarnir fyrir tölt og flugskeið tilbúnir en keppt verður í þessum tveimur greinum á morgun í Samskipahöllinni í Spretti í Kópavogi. Keppni hefst á slaginu 19:00 með forkeppni í tölti.
Ráslistinn í tölti er svakalegur og ljóst að keppnin verður spennandi og hrossinn hæfileikarík
Á ráslistanum eru margir af bestu tölturum landsins og má þar nefna töltdrottningarnar Skímu frá Kvistum, Örnu frá Skipaskaga, Gloríu frá Skúfslæk, Kötlu frá Ketilsstöðum, Pixi frá Mið-Fossum og fleiri.
Margir stóðhestar eru á listanum sumir þeirra hafa staðið framarlega í keppni áður og aðrir ætla sér að sýna sig og sanna. Má þar nefna Hring frá Gunnarsstöðum, Frama frá Ketilsstöðum, Arð frá Efri-Þverá, Háfeta frá Hákoti, Ljúf frá Torfunesi, Straum frá Feti og Spöl frá Njarðvík.
Ljóst er að ef telja ætti upp þá hesta sem líklegt er að sigri keppnina þyrfti að tína til öll þau hross sem á ráslistanum eru, gæðin eru það mikil.
Þegar töltinu er lokið tekur við flugskeið í gegnum höllina. Sigurvegarar gæðingaskeiðsins Konráð Valur og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu ríða á vaðið en þetta er eitt fljótasta par landsins í dag. Helga Una sigraði skeiðið í KS deildinni nú í vikunni á Besta frá Upphafi á feikna tíma þannig að engin skyldi afskrifa þau. Ráslistinn í skeiði er ekki síður spennandi en í töltinu.
Ljóst er að spennan í einstaklingskeppninni hefur sjaldan verið jafn mikil og núna og því enginn leið að spá fyrir um hver muni standa uppi sem sigurvegari deildarinnar. Nóg er af stigum í pottinum fyrir þessar tvær greinar.
Allir hestamenn landsins og fleiri til ættu því að taka kvöldið frá og fylgjast með spennandi keppni.
Ráslisti í tölti
1 Konráð Valur Sveinsson Frú Lauga frá Laugavöllum Lýsi / Oddhóll / Þjóðólfshagi
2 Sigurbjörn Bárðarson Nagli frá Flagbjarnarholti Lýsi / Oddhóll / Þjóðólfshagi
3 Guðmar Þór Pétursson Brúney frá Grafarkoti Heimahagi
4 Bergur Jónsson Katla frá Ketilsstöðum Gangmyllan
5 Árni Björn Pálsson Skíma frá Kvistum Top Reiter
6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Roði frá Margrétarhofi Ganghestar / Margrétarhof
7 Eyrún Ýr Pálsdóttir Reynir frá Flugumýri Hrímnir / Export-Hestar
8 Sigursteinn Sumarliðason Háfeti frá Hákoti Heimahagi
9 Freyja Amble Gísladóttir Álfastjarna frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan
10 Jakob Svavar Sigurðsson Gloría frá Skúfslæk Top Reiter
11 Hinrik Bragason Baron frá Bala 1 Hestvit / Árbakki / Kvistir
12 Davíð Jónsson Ólína frá Skeiðvöllum Heimahagi
13 Reynir Örn Pálmason Elvur frá Flekkudal Ganghestar / Margrétarhof
14 Guðmundur Björgvinsson Straumur frá Feti Hestvit / Árbakki / Svarthöfði
15 Sigurður Sigurðarson Arna frá Skipaskaga Lýsi / Oddhóll / Þjóðólfshagi
16 Janus Halldór Eiríksson Hlýri frá Hveragerði Auðsholtshjáleiga
17 Ragnar Tómasson Sleipnir frá Árnanesi Hestvit Árbakki / Svarthöfði
18 Ásmundur Ernir Snorrason Spölur frá Njarðvík Auðsholtshjáleiga
19 Hanna Rún Ingibergsdóttir Hrafnfinnur frá Sörlatungu Hrímnir / Export-Hestar
20 Viðar Ingólfsson Pixi frá Mið-Fossum Top Reiter
21 Sigurður Vignir Matthíasson Arður frá Efri-Þverá Ganghestar / Margrétarhof
22 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan
23 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ljúfur frá Torfunesi Auðsholtshjáleiga
24 Þórarinn Ragnarsson Hringur frá Gunnarsstöðum I Hrímnir / Export-Hestar
Ráslisti í skeið
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu Lýsi / Oddhóll / Þjóðólfshagi_
2 Elin Holst Hrappur frá Sauðárkróki Gangmyllan
3 Hinrik Bragason Jóhannes Kjarval frá Hala Hestvit / Árbakki / Svarthöfði
4 Guðmundur Björgvinsson Glúmur frá Þóroddsstöðum Hestvit / Árbakki / Svarthöfði
5 Hanna Rún Ingibergsdóttir Funi frá Hofi Hrímnir / Export-Hestar
6 Jakob Svavar Sigurðsson Glóra frá Skógskoti Top Reiter
7 Þórarinn Ragnarsson Hákon frá Sámsstöðum Hrímnir / Export-Hestar
8 Sigurbjörn Bárðarson Snarpur frá Nýjabæ Lýsi / Oddhóll / Þjóðólfshagi
9 Helga Una Björnsdóttir Besti frá Upphafi Hrímnir / Export-Hestar
10 Bjarni Bjarnason Randver frá Þóroddsstöðum Auðsholtshjáleiga
11 Davíð Jónsson Irpa frá Borgarnesi Heimahagi
12 Sigurður Sigurðarson Drift frá Hafsteinsstöðum Lýsi / Oddhóll / Þjóðólfshagi
13 Guðmar Þór Pétursson Rúna frá Flugumýri Heimahagi
14 Hans Þór Hilmarsson Assa frá Bjarnarhöfn Ganghestar / Margrétarhof
15 Bergur Jónsson Segull frá Halldórsstöðum Gangmyllan
16 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal Ganghestar / Margrétarhof
17 Sigursteinn Sumarliðason Bína frá Vatnsholti Heimahagi
18 Ævar Örn Guðjónsson Vaka frá Sjávarborg Gangmyllan
19 Ragnar Tómasson Isabel frá Forsæti Hestvit / Árbakki / Svarthöfði
20 Árni Björn Pálsson Skykkja frá Breiðholti í Flóa Top Reiter
21 Ásmundur Ernir Snorrason Eva frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga
22 Sigurður Vignir Matthíasson Léttir frá Eiríksstöðum Ganghestar / Margrétarhof
23 Teitur Árnason Ör frá Eyri Top Reiter
24 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Lilja frá Dalbæ Auðsholtshjáleiga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH