Opið Grímutölt Harðar

  • 8. janúar 2013
  • Fréttir
Opið Grímutölt Harðar

Opið grímu og bjórtöltskeppni verður haldið í reiðhöll hestamannfélagsins Harðar í Mosfellsbæ laugardaginn 19. janúar nk. að er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

„Laugardaginn 19. janúar verður haldið opið Grímutölt, sem er bæði fyrir börn og fullorðna. Skráningargjald er 1000 kr fyrir unglinga og ungmenni, 1500 kr fyrir fullorðina, frítt fyrir börn og polla.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum :
  • Pollar (teymdir)
  • Pollar (ríða einir)
  • Börn
  • Unglingar
  • Ungmenni
  • Fullorðinsflokkur
  • Heldri manna og konu flokkur
 
Verðlaun verða veitt fyrir flottasta búninginn í hverjum flokki ( nema polla flokkum ). Skráning verður í höllinni á milli 11 – 13. Seldar verða veitingar.“
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link