Hestadagar í Skagafirði

  • 23. apríl 2023
  • Tilkynning

Föstudagskvöldið, 28.apríl fer fram lokakvöld Meistaradeildar KS þar sem keppt verður í tölti og skeiði. Þar mun koma í ljós hverjir standa uppi sem sigurvegarar Meistaradeildar KS 2023 en það má svo sannarlega segja að það stefni í gríðarlega sterkt og spennandi lokakvöld þar sem einstaklings -og liðakeppnin er galopin og geta nokkrir knapar gert sig líklega að sigri – en allt þarf að ganga upp!

Kennslusýningar verða í Svaðastaðahöllinni á laugadaginn þar sem reiðkennarefni Háskólans á Hólum, hestabraut FNV & reiðmeistararnir Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson koma fram.

Tekið til kostanna 2023 fer fram í reiðhöllinni Svaðastöðum laugardaginn 29. apríl nk. kl. 20:30 – Húsið opnar klukkan 19 þar sem hægt verður að kaupa mat og drykki.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link