Védís Huld Sigurðardóttir og Íbishóll Sigurvegarar Meistaradeildar KS 2023
Frábæru tímabili Meistaradeildar KS er nú lokið og hefur keppnin verið æsispennandi nú í vetur og var ekki neitt öðruvísi uppi á teningnum í kvöld!
Védís Huld Sigurðardóttir sigraði Meistaradeild KS 2023 en hún reið til úrslita í öllum greinum vetrarins.
Í öðru sæti var Mette Mannseth, í þriðja sæti Guðmunda Ellen Sigurðardóttir, í fjórða sæti Þórarinn Eymundsson og í því fimmta Bjarni Jónasson.

Í liðakeppninni var það lið Íbishóls sem sigraði liðakeppni Meistaradeildar KS árið 2023!
Liðsmenn eru Magnús Bragi Magnússon (liðsstjóri), Guðmar Freyr Magnússon, Freyja Amble Gísladóttir, Védís Huld Sigurðardóttir og Árný Oddbjörg Oddsdóttir.
Lokastaða liða:
1. Íbishóll 396 stig
2. Þúfur 333 stig
3. Hrímnir 323 stig
4. Dýraspítalinn Lögmannshlíð 316 stig
5. Storm Rider 310.5
6. Equinics 303.5
7. Uppsteypa 275.5
8. Eques 210.5

Innilega til hamingju öll
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH