Hvað má og hvað má ekki í keppni 2023?
Félag Tamningamanna ætlar að bjóða uppá opinn fund á Zoom á mánudaginn 1.maí með feðgunum Sigurði Ævarssyni og Hinriki Þóri Sigurðssyni.
Þeir eru einstaklega vel að sér um þær breytingar sem hafa orðið á reglum FEIF.
Við viljum hvetja alla sem hafa áhuga á keppni að fræðast um þessi mál.
Nú eru útimótin að bresta á og er því betra að vera vel upplýstur!
Fundurinn hefst kl. 17:00.
Hlekkurinn inn á fundinn verður birtur hér í Facebook-viðburðinum á fundsdegi.

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts