Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla 2023

  • 30. apríl 2023
  • Tilkynning

Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla 2023 verður haldið dagana 4.-7. maí á Hraunhamarsvellinum.

 

Aðalstyrktaraðili mótsins er Eykt sem er öflugt þekkingarfyrirtæki í byggingariðnaði og aðalverktaki við byggingu nýrrar reiðhallar Sörla

 

Mótið verður opið öllum keppendum.

 

Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.

 

Skráning á mótið er í Sportfeng og opnar í dag og stendur til miðnættis mánudaginn 1. maí, eftir þann tíma verður ekki tekið við skráningum.

 

Þar sem ekki er hægt að skrá polla yngri en 9 ára í Sportfeng, viljum við biðja ykkur að senda okkur nafn polla og nafn hests á [email protected] og taka fram hvort pollinn verði ríðandi eða teymdur og skráningu fyrir þá líkur einnig á miðnætti 1. maí.

 

Sjálfboðaliða vantar að sjálfsögðu fyrir mótið, áhugsamir sendi tölvupóst á [email protected]

 

Keppnisgreinar eru eftirfarandi :

 

  • Meistaraflokkur: Tölt T1, Tölt T2, Fjórgangur V1, Fimmgangur F1, Gæðingaskeið PP1.

 

  • 1 flokkur: Tölt T3, Tölt T4, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2.

Gæðingaskeið PP1.

 

  • 2 flokkur: Tölt T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5, Fimmgangur F2.

 

  • Ungmenni: Tölt T1, Tölt T2, Fjórgangur V1, Fimmgangur F1, Gæðingaskeið PP1.

 

  • Unglingar: Tölt T3, Tölt T4, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Fjórgangur V5.

 

  • Börn: Tölt T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5.

 

  • 100 m skeið P2.

 

  • Pollar: Boðið verður upp á pollaflokk.

 

Skráningagjöld eru eftirfarandi:

 

  • Barnaflokkur og Unglingaflokkur: 5000 kr.

 

  • Meistaraflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og Ungmennaflokkur: 6000 kr.

 

  • Gæðingaskeið og 100m skeið – 6000 kr

 

Sörlafélagar þurfa að hafa greitt félagsgjöldin sín til að hafa keppnisrétt á mótinu.

 

Allar afskráningar og fyrirspurnir skulu berast á [email protected]

 

Dagskrá verður auglýst síðar.

 

Mótanefnd

Sörla

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link