Fundarherferð Landsmótsnefndar heldur áfram

  • 5. september 2011
  • Fréttir
Fundarherferð Landsmótsnefndar heldur áfram

Landsmótsnefndin heldur áfram fundaherferð sinni í þessari viku og verður annað kvöld 6. september kl. 20.30 á Hvanneyri.

Suðurlandsfundurinn verður svo í Hvoli á Hvolsvelli þann 8. september kl. 20:00. Föstudagskvöldið 9. september verður svo fundað hjá hestamannafélaginu Fáki í Reykjavík kl. 20:00.
 
Síðasti fundurinn í fundalotunni verður svo þriðjudagskvöldið 13. september kl. 20:00 í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi.
 
Sem fyrr hvetur nefndin og stjórn LH alla hestamenn að fylkjast á fundarstaðina og taka þátt í málefnalegum og skemmtilegum umræðum um málefni landsmótanna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link