Skráningu lýkur í dag á Reykjavíkurmeistaramótið

  • 4. júní 2023
  • Tilkynning
Skráningarfrestur rennur út í kvöld, 5. júní

Síðasti dagur til að skrá sig á opna WR Reykjavíkurmeistaramót Fáks er mánudagurinn 5. júní. Mótið
fer fram dagana 12.- 18. júní n.k. Skráningar fara fram á vef Sportfengs, IS2023FAK149.
Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR 12. – 18.
júní“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja
við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á [email protected].
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
 9.000 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2, F2 8.500 kr)
 8.500 kr – 1. og 2. flokkur
 6.500 kr – barna- og unglingaflokkur
 6.500 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið
Greinar og flokkar í boði:
 T1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
 T2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
 T3 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
 T4 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
 T7 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
 V1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
 V2 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
 V5 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
 F1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
 F2 – unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
 P1 250m skeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
 P2 100m skeið – meistaraflokkur, 1. flokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur.
 P3 150m skeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
 PP1 gæðingaskeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
Víðidalurinn mun taka á móti keppendum, aðstandendum, Fáksmönnum og öðrum gestum í
hátíðarbúningi alla keppnisdagana og RÚV mun sýna beint frá úrslitum í ungmenna- og
meistaraflokkum eftir hádegi sunnudaginn 18. júní.
Fáksmenn bjóða öll velkomin að fylgjast með heimsklassa sýningum í öllum keppnisgreinum,
styrkleika- og aldursflokkum.
Framkvæmdastjóri: Einar Gíslason
Mótsstjóri: Hilda Karen Garðarsdóttir
Vallarstjóri: Þórir Örn Grétarsson
Yfirdómari: Sigurður Emil Ævarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link