Gæðingamót Jökuls verður 27. – 30. júlí
Gæðingamót Jökuls verður haldið dagana 27. – 30.júlí næstkomandi en mótið er opið.
Mótið verður með hefðbundnu sniði og þeir flokkar sem eru í boði eru eftirfarandi:
- A- flokkur
- A-flokkur áhugamanna
- A- flokkur ungmenni
- B-flokkur
- B- flokkur áhugamanna
- B- flokkur ungmenna
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- Tölt T3 – 18 ára og eldri
- Tölt T3 – 17 ára og yngri, tölt
- T7 – börn
- T7 – fullorðna
- 100m skeið
Skráningargjald: í eldri flokka og skeið er 7.000 kr og í yngri flokka 5.000 kr.
„Takið helgina frá, fjölmennum á Flúðir á þetta skemmtilega mót,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Nánari upplýsingar um mótið má fá með að senda póst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts