Áhugamaður tilnefndur
Það er ekki oft sem hestaíþróttamenn eru tilnefndir til íþróttamanns árisins og enn sjaldgæfara er að áhugamenn í hestaíþróttum fái slíkar tilnefningar.
Guðbjartur Hjálmarsson er áhugamaður í hestamennsku og var einn af sex sem tilnefndir voru til íþróttamanns ársins í Fjarðarbyggð. Hann var eini hestamaðurinn í hópnum en hann hefur um alllangt skeið haft hestamennsku sem áhugamál, en hann starfar hjá Síldarvinnslunni á Neskaupsstað.
Eiðfaxi óskar Guðbjarti til hamingju með tilnefninguna en íþróttamaður Fjarðarbyggðar var Eva Dögg Jóhannsdóttir Ungmennafélaginu Val Reyðarfirði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH