Járnað í beinni útsendingu
Mustad verður með beina útsendingu frá hesthúsi Þórðar Þorgeirsson í kvöld þar sem Kristján Elvar Gíslason, járningarmeistari, mun járna einn af keppnishestum Þórðar fyrir Þýskameistaramótið.
Útsendingin hefst kl. 18:00 á íslenskum tíma og hægt er að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Markmiðið með útsendingunni er að útskýra og sýna hvernig íslendingar járna fimmgangshestinn okkar en útsendingin er hluti af því að fræða erlenda járningamenn um það hvernig við járnum íslensk hross.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH