Jóhanna og Bárður efst í fjórgangi meistara
Forkeppni í fjórgangi V1 í meistaraflokki er lokið og þar er langefst Jóhanna Margrét Snorradóttir á Bárði frá Melabergi en þau hlutu 7,90 í einkunn. Þau unnu þessa grein á Landsmóti og Íslandsmóti síðasta sumar. Þau Jóhanna og Bárður hafa verið á miklu flugi í vor og sumar og þessi árangur þeirra í dag styrkir stöðu þeirra fyrir landsliðið en eins og áður hefur komið fram hér á Eiðfaxa verður hópurinn sem fer á Heimsmeistaramót tilkynntur 7. júlí.
Jafnar í öðru til þriðja sæti eftir forkeppni eru þær Elin Holst á Frama frá Ketilsstöðum og Sara Sigurbjörnsdóttir á Flugu frá Oddhóli.
Hægt er að horfa á Íslandsmótið í beinni á Alendis.is
Niðurstöður – Fjórgangur V1 – Forkeppni – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi 7,90
2-3 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum 7,50
2-3 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli 7,50
4 Hákon Dan Ólafsson Hátíð frá Hólaborg 7,47
5-7 Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka 7,40
5-7 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 7,40
5-7 Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi 7,40
8-9 Stella Sólveig Pálmarsdóttir Stimpill frá Strandarhöfði 7,23
8-9 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum 7,23
10 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,20
——————
11-12 Sigurður Vignir Matthíasson Safír frá Mosfellsbæ 7,17
11-12 Hans Þór Hilmarsson Fákur frá Kaldbak 7,17
13-14 Hinrik Bragason Sigur frá Stóra-Vatnsskarði 7,13
13-14 Viðar Ingólfsson Þormar frá Neðri-Hrepp 7,13
15-16 Lea Christine Busch Kaktus frá Þúfum 7,03
15-16 Brynja Kristinsdóttir Tími frá Breiðabólsstað 7,03
17 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Steinar frá Stuðlum 7,00
18 Eyrún Ýr Pálsdóttir Blængur frá Hofsstaðaseli 6,97
19 Matthías Kjartansson Aron frá Þóreyjarnúpi 6,93
20 Lea Schell Pandra frá Kaldbak 6,83
21 Ólöf Helga Hilmarsdóttir Katla frá Mörk 6,77
22-23 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Snót frá Laugardælum 6,73
22-23 Ólafur Ásgeirsson Fengsæll frá Jórvík 6,73
24-27 Vignir Sigurðsson Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku 6,70
24-27 Þórarinn Ragnarsson Hringadróttinssaga frá Vesturkoti 6,70
24-27 Sara Sigurbjörnsdóttir Vísir frá Tvennu 6,70
24-27 Ásmundur Ernir Snorrason Ketill frá Hvolsvelli 6,70
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH