Þorgeir og Goðasteinn efstir í fimmgangi meistara
Þorgeir og Goðasteinn Mynd: Hrefna María Ómarsdóttir
Þorgeir Ólafsson og Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu standa efstir eftir forkeppni í fimmgangi með 7,50 í einkunn. Þorgeir og Goðasteinn unnu fimmganginn á Reykjavíkurmeistaramótinu og stóðu sig jafnframt vel í samanlögðum fimmgangsgreinum. Hefur Þorgeir gefið það út að ef kallið komi þá séu þeir félagar klárir á Heimsmeistaramótið í ágúst.
Jöfn í öðru til fjórða sæti eru Sara Sigurbjörnsdóttir á Flóka frá Oddhóli, Þórarinn Eymundsson á Þráni frá Flagbjarnarholti og Jakob Svavar Sigurðsson á Nökkva frá Hrísakoti. Sara og Flóki hafa alltaf þótt líklegt par í landsliðið og verður gaman að fylgjast með þeim í úrslitum á sunnudaginn. Teitur Árnason tryggði sér líka sæti í a úrslitum með einkunnina 7,37 en hann sat Atlas frá Hjallanesi 1
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr fimmgangi í meistaraflokki á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna.
Fimmgangur F1 – Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Þorgeir Ólafsson Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu 7,50
2-4 Þórarinn Eymundsson Þráinn frá Flagbjarnarholti 7,47
2-4 Sara Sigurbjörnsdóttir Flóki frá Oddhóli 7,47
2-4 Jakob Svavar Sigurðsson Nökkvi frá Hrísakoti 7,47
5 Teitur Árnason Atlas frá Hjallanesi 1 7,37
6-7 Ásmundur Ernir Snorrason Ás frá Strandarhöfði 7,33
6-7 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi 7,33
8 Mette Mannseth Kalsi frá Þúfum 7,20
9-10 Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum 7,07
9-10 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum 7,07
11-15 Daníel Jónsson Glampi frá Kjarrhólum 7,00
11-15 Finnbogi Bjarnason Einir frá Enni 7,00
11-15 Þórarinn Ragnarsson Herkúles frá Vesturkoti 7,00
11-15 Hafþór Hreiðar Birgisson Þór frá Meðalfelli 7,00
11-15 Hinrik Bragason Prins frá Vöðlum 7,00
16 Gústaf Ásgeir Hinriksson Silfursteinn frá Horni I 6,93
17-18 Sigurður Vignir Matthíasson Hljómur frá Ólafsbergi 6,87
17-18 Hanna Rún Ingibergsdóttir Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk 6,87
19-20 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kamma frá Margrétarhofi 6,83
19-20 Ólafur Ásgeirsson Hekla frá Einhamri 2 6,83
21 Guðmundur Björgvinsson Vésteinn frá Bakkakoti 6,80
22 Guðmundur Björgvinsson Gandi frá Rauðalæk 6,73
23 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Esja frá Miðsitju 6,63
24-25 Eyrún Ýr Pálsdóttir Nóta frá Flugumýri II 6,60
24-25 Eyrún Ýr Pálsdóttir Júní frá Brúnum 6,60
26-27 Sigurður Sigurðarson Skugga-Sveinn frá Þjóðólfshaga 1 6,47
26-27 Arnar Bjarki Sigurðarson Magni frá Ríp 6,47
28 Þorsteinn Björn Einarsson Rjóður frá Hofi á Höfðaströnd 6,43
29-32 Jóhann Kristinn Ragnarsson Spyrnir frá Bárubæ 0,00
29-32 Ragnhildur Haraldsdóttir Ísdís frá Árdal 0,00
29-32 Eyrún Ýr Pálsdóttir Leynir frá Garðshorni á Þelamörk 0,00
29-32 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Jökull frá Breiðholti í Flóa 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH