Tólf ofstórum knöpum vísað af sýningu
Mynd: Horse&Hound
Breski fjölmiðilinn Horse&Hound greindi frá því að tólf of stórum knöpum voru beðnir um að stíga af baki og yfirgefa sýninguna the Royal Three Counties Show sem haldin var í Bretlandi 16. – 18. júní.
Umræðan um þyngdartakmörk á knöpum hefur verið fyrirferðarmikil erlendis og gæti haft áhrif á Íslandshestasamfélagið.
Í umfjöllun Horse&Hound kemur fram að þyngdartakmörk séu eitthvað sem koma skal á öllum sýningum. Á sýningunni var bæði verið að víkja knöpum frá vegna hæðar annars vegar og þyngdar hins vegar. „Þetta snýst ekki bara um þyngd. Ég sagði við knapana [sem verið var að víkja af baki] að það er fólk sem vill koma í veg fyrir að farið sé á bak á hrossum og þið eruð að gefa þeim skotleyfi,“ sagði Mrs. Stoddart-West sem var velferðarfulltrúinn á staðnum.
HÉR er hægt að lesa greinina í heild sinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH