Glampi frá Kjarrhólum tekur á móti hryssum í Árbæjarhjáleigu
Glampi er alveg einstakur höfðingi með frábært geðslag, hann er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Galsadótturinni Gígju frá Árbæ.
Glampi hefur staðir sig vel í sínum fyrstu keppnum og hefur hann hlotið yfir 7 í Fimmgang og 7,61 í tölti og 8,78 í A-flokk
Verð fyrir tollinn er 200.000 m/vsk, girðingagjaldi og einum sónar.
Glampi tekur vel á móti hryssum og folöldum, ekkert mál að bæta inná hann og hefur hann fyljað mjög vel síðustu ár.
Áhugasamir geta hafa samband við Marjolijn Tiepen í síma 8646958 [email protected] eða Kristinn síma 8471179
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts