„Við förum og gerum okkar besta“
Viðtal við Herdísi Björgu Jóhannsdóttur
Eiðfaxi náði tali af Herdísi Björgu eftir kynningu landsliðsins 2023 en fer hún með hestinn Kvarða frá Pulu á Heimsmeistaramótið.
Herdís Björg er yngsti knapi landsliðsins einungis 17 ára gömul. Herdís og Kvarði hafa náð eftirtektarverðum árangri í tölti undanfarin ár. Urðu Íslandsmeistarar í unglingaflokki í tölti árið 2022 og þau unnu töltið í ungmennaflokki á Íslandsmótinu sem fór fram í lok júní með glæsieinkunnina 8,11. Það verður virkilega spennandi að fylgjast með þeim á Heimsmeistaramótinu í ágúst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
„Einn fyrir alla og allir fyrir einn“