Skeiðfélagið Niðurstöður frá þriðju skeiðleikum Skeiðfélagsins

  • 19. júlí 2023
  • Fréttir

Ylfa Guðrún og Straumur Mynd: Hrefna Hallgrímsdóttir

Þriðju skeiðleikar Skeiðfélagsins, Líflands og Equees fóru fram í kvöld á Selfossi. 

Teitur Árnason og Styrkur frá Hofsstaðaseli voru með besta tímann í 250 m. skeiðinu eða 23,21 sek. Í öðru sæti varð Sigurður Sigurðarson á Trommu frá Skúfslæk með tímann 23,70 sek. og í þriðja Jón Óskar Jóhannesson og Gnýr frá Brekku með tímann 23,75 sek. Mjótt á munum þar.

Ísólfur Ólafsson og Ögrunn frá Leirulæk unnu 150 m. skeiðið með besta tímann 14,16 sek en það er næst besti tími ársins. Þórarinn Ragnarsson og Bína frá Vatnsholti voru í öðru sæti á 14,60 sek. og í þriðja sæti voru Konráð Valur Sveinsson og Tangó frá Litla-Garði með tímann 14,68 sek.

100 m. skeiðið var hörkuspennandi en Ylfa Guðrún Svafarsdóttir á Straumi frá Hríshóli 1 vann á tímanum 7,61 sek. og næstu þrír knapar voru allir með sama tímann eða 7,64 sek, en þegar það gerist er þeim raðað niður í sæti eftir næsta besta tímanum þeirra. Jakob Svavar Sigurðsson og Jarl frá Kílhrauni urðu í öðru sæti. Í þriðja sæti varð Erlendur Ari Óskarsson og Dama frá Hekluflötum og fjórði Þórarinn Ragnarsson og Freyr frá Hraunbæ.

Næstu skeiðleikar fara fram á Hellu og verða samhliða Suðurlandsmóti, nánari dagsetning kemur þegar nær dregur.

Flugskeið 100m P2
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Straumur frá Hríshóli 1 7,61
2 Jakob Svavar Sigurðsson Jarl frá Kílhrauni 7,64
3 Erlendur Ari Óskarsson Dama frá Hekluflötum 7,64
4 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 7,64
5 Ísólfur Ólafsson Ögrunn frá Leirulæk 7,71
6 Teitur Árnason Styrkur frá Hofsstaðaseli 7,80
7 Kristófer Darri Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 7,85
8 Jón Óskar Jóhannesson Gnýr frá Brekku 7,96
9 Helgi Gíslason Hörpurós frá Helgatúni 7,98
10 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir Snædís frá Kolsholti 3 7,98
11 Birta Ingadóttir Dreki frá Meðalfelli 8,03
12 Kristján Árni Birgisson Krafla frá Syðri-Rauðalæk 8,09
13 Embla Lind Ragnarsdóttir Kleópatra frá Litla-Dal 8,18
14 Elisabeth Marie Trost Berta frá Bakkakoti 8,18
15 Katrín Eva Grétarsdóttir Gosi frá Tóftum 8,20
16 Arnar Máni Sigurjónsson Heiða frá Skák 8,22
17 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Sefja frá Kambi 8,39
18 Sigurður Sæmundsson Fljóð frá Skeiðvöllum 8,62
19 Larissa Silja Werner Hylur frá Kjarri 8,85
20 Rósa Kristín Jóhannesdóttir Brimkló frá Þorlákshöfn 9,13
21 Veronika Eberl Mardís frá Hákoti 9,37
22 Jón Ársæll Bergmann Drífandi frá Stóru-Gröf ytri 9,65
23 Bjarni Bjarnason Hljómur frá Þóroddsstöðum 10,86
24-29 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gosi frá Staðartungu 0,00
24-29 Þórhildur Lotta Kjartansdóttir Þjálfi frá Búð 0,00
24-29 Kjartan Ólafsson Hilmar frá Flekkudal 0,00
24-29 Konráð Valur Sveinsson Kvistur frá Kommu 0,00
24-29 Iris Cortlever Kári frá Efri-Kvíhólma 0,00
24-29 Sigurður Sigurðarson Drómi frá Þjóðólfshaga 1 0,00

Skeið 150m P3
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Ísólfur Ólafsson Ögrunn frá Leirulæk 14,16
2 Þórarinn Ragnarsson Bína frá Vatnsholti 14,60
3 Konráð Valur Sveinsson Tangó frá Litla-Garði 14,68
4 Sigurður Sigurðarson Drómi frá Þjóðólfshaga 1 14,81
5 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Óskastjarna frá Fitjum 15,20
6 Birta Ingadóttir Dreki frá Meðalfelli 15,36
7 Sigurður Halldórsson Gammur frá Efri-Þverá 15,38
8 Kjartan Ólafsson Hilmar frá Flekkudal 15,41
9 Jakob Svavar Sigurðsson Ernir frá Efri-Hrepp 15,55
10 Kristján Árni Birgisson Máney frá Kanastöðum 15,70
11 Ævar Örn Guðjónsson Draumur frá Borgarhóli 16,19
12 Erlendur Ari Óskarsson Druna frá Fornusöndum 16,23
13 Þorgils Kári Sigurðsson Gjóska frá Kolsholti 3 16,28
14 Ævar Örn Guðjónsson Snót frá Straumi 16,33
15 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Hrappur frá Stóru-Ásgeirsá 16,53
16-18 Þráinn Ragnarsson Blundur frá Skrúð 0,00
16-18 Helgi Gíslason Hörpurós frá Helgatúni 0,00
16-18 Bjarni Bjarnason Glotti frá Þóroddsstöðum 0,00

Skeið 250m P1
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Teitur Árnason Styrkur frá Hofsstaðaseli 23,21
2 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 23,70
3 Jón Óskar Jóhannesson Gnýr frá Brekku 23,75
4 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum 23,87
5 Kristófer Darri Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 24,06
6 Ævar Örn Guðjónsson Vigdís frá Eystri-Hól 24,43
7 Bjarni Bjarnason Drottning frá Þóroddsstöðum 24,98
8 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 25,30
9-11 Arnar Máni Sigurjónsson Frekja frá Dýrfinnustöðum 0,00
9-11 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Straumur frá Hríshóli 1 0,00
9-11 Iris Cortlever Seyla frá Selfossi 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar