Jón Stenild og Eilífur fra Teglborg efstir

  • 25. júlí 2023
  • Fréttir
WorldRanking listi FEIF í fimmgangi F1

Það styttist í Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst en nú eru 12 dagar þangað til að mótið formlega hefst. Gaman er að glugga í WR listana og sjá hvaða knapar hafa verið að ná hæstu einkunnum í hverri grein. WR listinn er byggður á þremur hæstu einkunnunum sem knapi og hestur hafa náð sér í á WR mótum síðustu tvö ár.

Jón Stenild og Eilífur fra Teglborg eru ríkjandi heimsmeistarar í fimmgangi F1 og tróna á toppnum á WR listanum í fimmgangi F1 með meðaltalið 7,90. Þeir hafa einnig hlotið hæstu einkunn í forkeppni sem gefin hefur verið síðustu tvö ár á WR móti eða 8,00.

Það verður gaman að fylgjast með fimmgangnum á Heimsmeistaramótinu en þar keppa fyrir Íslandshönd Sara Sigurbjörnsdóttir á Flóka frá Oddhóli (6 á WR listanum) og Þorgeir Ólafsson á Goðasteini frá Haukagili á Hvítársíðu (11 á WR listanum).

Í ár hafa þeir Pierre Sandsten Hoyos á Búa frá Húsavík og Jón á Eilíf hlotið hæstu einkunn í forkeppni eða 7,87. Sara og Flóki eru í fjórða sæti á árslistanum og Þorgeir og Goðasteinn í því sjöunda.

WorldRanking listi FEIF
Rider Countries Marks
1 Jón Stenild
Eilífur fra Teglborg
DK NC also 137: 6.587
8.00; 7.87; 7.83 (of 10)
7.900
2 Frauke Schenzel
Óðinn vom Habichtswald
DE DK also 27: 7.177
7.90; 7.80; 7.73 (of 4)
7.810
3 Pierre Sandsten Hoyos
Búi frá Húsavík
AT DE MC also 12: 7.367
7.87; 7.83; 7.70 (of 7)
7.800
4 Lisa Schürger
Byr frá Strandarhjáleigu
DE MC 7.87; 7.67; 7.63 (of 12) 7.723
5 Vicky Eggertsson
Gandur vom Sperlinghof
DE DK MC 7.77; 7.67; 7.63 (of 11) 7.690
6 Sara Sigurbjörnsdóttir
Flóki frá Oddhóli
IS 7.80; 7.47; 7.47 (of 6) 7.580
7 Nils Christian Larsen
Gustur vom Kronshof
DE DK NL NO 7.60; 7.57; 7.43 (of 5) 7.533
8 Piet Hoyos
Brynjar frá Bakkakoti
AT MC also 13: 7.357
7.53; 7.50; 7.40 (of 5)
7.477
9 Erik Andersen
Farsæll fra Midtlund
NC NO SE 7.47; 7.43; 7.43 (of 9) 7.443
10 Caspar Hegardt
Oddi från Skeppargården
DK SE 7.57; 7.43; 7.27 (of 7) 7.423
11 Þorgeir Ólafsson
Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu
IS also 83: 6.813
7.50; 7.47; 7.23 (of 3)
7.400
12 Pierre Sandsten Hoyos
Geisli frá Svanavatni
AT also 3: 7.800
7.47; 7.40; 7.23 (of 3)
7.367
13 Anne Frank Andresen
Vökull frá Leirubakka
DE DK NC NO 7.40; 7.37; 7.30 (of 12) 7.357
13 Piet Hoyos
Sproti frá Innri-Skeljabrekku
AT MC also 8: 7.477
7.50; 7.37; 7.20 (of 5)
7.357
15 Máni Hilmarsson
Gljátoppur frá Miðhrauni
SE also 307: 6.000
7.60; 7.33; 7.10 (of 6)
7.343
15 Svenja Kohl
Kraftur frá Steinnesi
DE MC also 61: 6.900
7.40; 7.33; 7.30 (of 7)
7.343
17 Teitur Árnason
Atlas frá Hjallanesi 1
IS 7.40; 7.37; 7.23 (of 5) 7.333
18 Ásmundur Ernir Snorrason
Ás frá Strandarhöfði
IS 7.47; 7.33; 7.10 (of 8) 7.300
19 Jakob Svavar Sigurðsson
Nökkvi frá Hrísakoti
IS 7.47; 7.20; 7.20 (of 6) 7.290
19 Susanne Larsen Murphy
Völsungur frá Skeiðvöllum
DE DK NC 7.37; 7.27; 7.23 (of 13) 7.290

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link