Frauke Schenzel og Jódís vom Kronshof efstar
Frauke Schenzel og Jódís vom Kronshof Ljósmynd: Ulrich Neddens
Það styttist í Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst en nú eru 11 dagar þangað til að mótið formlega hefst. Gaman er að glugga í WR listana og sjá hvaða knapar hafa verið að ná hæstu einkunnum í hverri grein. WR listinn er byggður á þremur hæstu einkunnunum sem knapi og hestur hafa náð sér í á WR mótum síðustu tvö ár.
Frauke Schenzel og Jódís vom Kronshof eru efstar á WR listanum í fjórgangi V1 með meðaltalið 8,10. Þær munu keppa fyrir hönd Þýskalands á mótinu.
Hæsta einkunnina sem gefin hefur verið í forkeppni síðustu tvö ár á WR móti er 8,27 og það var Nils Christian Larsen á Flaumi frá Sólvangi sem fékk þá einkunn. Nils er skráður með Flaum sem varahest en annars mætir hann á, Gust vom Kronshof, í fimmganginn. Norðmenn senda þó annað sterkt par en Anne Stine Haugen á Hæmi frá Hyldsbæk keppa fyrir Noreg og eru þau í öðru sæti á WR listanum. Þau hafa hlotið hæstu einkunnina af öllum í forkeppni á þessu ári eða 8.20.
Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi munu keppa í fjórgangi fyrir Íslandshönd en þau eru í sjöunda sæti á listanum. Ef árslistinn er skoðaður eru þau í fjórða sæti á honum. Líklegt þykir að Viðar Ingólfsson og Þór frá Stóra-Hofi mæti líka í fjórganginn en þeir hafa ekki keppt í þeirri grein áður.
WorldRanking listi FEIF
| Rider | Countries | Marks | ||
|---|---|---|---|---|
| 1 | Frauke Schenzel Jódís vom Kronshof |
DE DK MC | 8.17; 8.13; 8.00 (of 6) | 8.100 |
| 2 | Anne Stine Haugen Hæmir fra Hyldsbæk |
DE DK NO | also 44: 7.280 8.20; 8.07; 7.87 (of 10) |
8.047 |
| 3 | Nils Christian Larsen Flaumur frá Sólvangi |
DE DK NC NL NO | 8.27; 7.93; 7.90 (of 10) | 8.033 |
| 4 | Christina Lund Lukku-Blesi frá Selfossi |
DK NC NO | 8.00; 7.87; 7.83 (of 9) | 7.900 |
| 5 | Jóhann R. Skúlason Evert fra Slippen |
DE DK NO | 7.90; 7.90; 7.77 (of 6) | 7.857 |
| 6 | Dennis Hedebo Johansen Muni fra Bendstrup |
DE DK NC | also 88: 7.033 7.83; 7.80; 7.77 (of 8) |
7.800 |
| 7 | Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi |
IS | also 54: 7.187 7.90; 7.73; 7.70 (of 6) |
7.777 |
| 8 | Frederikke Stougård Austri frá Úlfsstöðum |
DE DK NC | 7.73; 7.70; 7.67 (of 11) | 7.700 |
| 9 | Kristján Magnússon Óskar från Lindeberg |
NC SE | 7.80; 7.60; 7.57 (of 7) | 7.657 |
| 10 | Vignir Jónasson Eyvindur frá Eyvindarmúla |
DK NC SE | 7.80; 7.60; 7.50 (of 7) | 7.633 |
| 11 | Hákon Dan Ólafsson Hátíð frá Hólaborg |
IS | also 173: 6.767 7.63; 7.63; 7.53 (of 8) |
7.597 |
| 12 | Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi |
IS | 7.77; 7.53; 7.47 (of 4) | 7.590 |
| 12 | James Boás Faulkner Hálfmáni frá Steinsholti |
SE | also 135: 6.877 7.67; 7.67; 7.43 (of 4) |
7.590 |
| 14 | Lisa Schürger Kjalar frá Strandarhjáleigu |
DE MC | also 32: 7.400, 155: 6.810 7.63; 7.53; 7.53 (of 4) |
7.563 |
| 15 | Steffi Svendsen Sjóli von Teland |
DK | also 142: 6.857 7.73; 7.47; 7.47 (of 6) |
7.557 |
| 16 | Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli |
IS | 7.67; 7.50; 7.47 (of 6) | 7.547 |
| 17 | Jolly Schrenk Glæsir von Gut Wertheim |
DE DK MC | also 35: 7.357, 147: 6.833 7.83; 7.50; 7.27 (of 6) |
7.533 |
| 18 | Irene Reber Þokki frá Efstu-Grund |
DE MC | also 67: 7.143, 67: 7.143, 220: 6.667 7.57; 7.57; 7.40 (of 8) |
7.513 |
| 19 | Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ |
IS | also 108: 6.957 7.53; 7.50; 7.47 (of 5) |
7.500 |
| 20 | Anna Sager Steggur frá Hrísdal |
AT DE MC | also 86: 7.044 7.83; 7.33; 7.33 (of 8) |
7.497 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH