Markus Albrecht Schoch og Kóngur frá Lækjamóti efstir
Markus Albrecht Schoch og Kóngur frá Lækjamóti Ljósmynd: Ulrich Neddens
Það styttist í Heimsmeistaramótið í Hollandi í ágúst en nú eru 6 dagar þangað til að mótið formlega hefst. Gaman er að glugga í WR listana og sjá hvaða knapar hafa verið að ná hæstu einkunnum og bestu tímunum í hverri grein. WR listinn er byggður á þremur hæstu einkunnunum/bestu tímum sem knapi og hestur hafa náð sér í á WR mótum síðustu tvö ár.
Efstir á WR listanum í 100 m. skeiði er Marcus Albrecht Schoch og Kóngur frá Lækjamóti með meðal tímann 7,27 sek. Markus og Kóngur keppa fyrir Sviss. Þriðji á listanum er Hans Þór Hilmarsson og Jarl frá Þóroddsstöðum en þeir eru efstir á árslistanum en besti tími þeirra í ár er 7,33 sek. Teitur Árnason og Drottning frá Hömrum III eru þriðju á árslistanum enn með besta tímann ársins á árslistanum eða 7,19 sek. Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri munu einnig keppa fyrir Ísland í greininni.
Það er gaman að sjá að á WR listanum er Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir og Ylfa frá Miðengi í 12 sæti en þau keppa í greininni sem ungmenni. Þau eru í 5 sæti á árslistanum en besti tími þeirra er 7,34 sek.
Það verður hörkuspennandi að fylgjast með skeiðinu á Heimsmeistaramótinu en við ættum að vera nokkuð sterk á þeim vængnum.
WR listi FEIF í 100 m. skeiði
| Rider | Countries | Marks | ||
|---|---|---|---|---|
| 1 | Markus Albrecht Schoch Kóngur frá Lækjamóti |
CH DE MC | also 51: 7.837 7.13; 7.33; 7.35 (of 9) |
7.270 |
| 2 | Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II |
IS | also 17: 7.580, 27: 7.677 7.22; 7.36; 7.38 (of 6) |
7.320 |
| 3 | Hans Þór Hilmarsson Jarl frá Þóroddsstöðum |
IS | 7.33; 7.36; 7.39 (of 8) | 7.360 |
| 4 | Filippa Helltén Óðinn from Inchree |
DK NC SE | 7.35; 7.39; 7.46 (of 11) | 7.400 |
| 5 | Teitur Árnason Drottning frá Hömrum II |
IS | 7.19; 7.53; 7.54 (of 10) | 7.420 |
| 6 | Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ |
IS | 7.25; 7.46; 7.57 (of 9) | 7.427 |
| 7 | Natalie Fischer Ímnir fra Egeskov |
DK NC | 7.31; 7.48; 7.51 (of 9) | 7.433 |
| 8 | Ladina Sigurbjörnsson-Foppa Losti frá Ekru |
AT CH DE | 7.28; 7.48; 7.69 (of 8) | 7.483 |
| 9 | Jens Füchtenschnieder Sproti vom Mönchhof |
DE MC | 7.34; 7.48; 7.64 (of 10) | 7.487 |
| 10 | Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi |
IS | 7.39; 7.50; 7.61 (of 4) | 7.500 |
| 11 | Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri |
IS | 7.37; 7.59; 7.60 (of 10) | 7.520 |
| 12 | Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Ylfa frá Miðengi |
IS | 7.34; 7.56; 7.68 (of 7) | 7.527 |
| 13 | Alexander Fedorov Hrólfur frá Hafnarfirði |
DE | 7.46; 7.55; 7.70 (of 9) | 7.570 |
| 14 | Henrik Gohn Rakel frá Skipaskaga |
DK NC SE | 7.45; 7.63; 7.64 (of 11) | 7.573 |
| 14 | Tania Højvang Jensen Glúmur frá Þóroddsstöðum |
DK NC SE | 7.47; 7.53; 7.72 (of 8) | 7.573 |
| 16 | Carina Jylebäck Jóra från Lövhagen |
NC SE | also 48: 7.830 7.51; 7.58; 7.64 (of 11) |
7.577 |
| 17 | Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk |
IS | also 2: 7.320, 27: 7.677 7.32; 7.60; 7.82 (of 3) |
7.580 |
| 18 | Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi |
IS | also 89: 8.050 7.49; 7.63; 7.63 (of 9) |
7.583 |
| 19 | Caroline Wangen Ógn frá Bessastöðum |
DK NC NO SE | 7.53; 7.58; 7.65 (of 8) | 7.587 |
| 20 | Alicia Palm Ljúfa från Ekeholm |
SE | 7.41; 7.64; 7.72 (of 7) | 7.590 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH