Landsliðshrossin farin út
Fjalladís frá Fornusöndum bíður eftir því að komast um borð, Hans Þór Hilmarsson heldur í hana. Mynd: LH
Íslensku landsliðshrossin flugu til Liege í Belgíu seinni partinn í dag. Þau byrjuð daginn á að fara í síðustu læknisskoðunina sem fór fram í Fáki og héldu síðan til Keflavíkur þar sem þeim var komið fyrir í boxum sínum fyrir flugið. Þau verða síðan keyrð frá Liege til Oirschot sem er ca. 1,5 tíma keyrsla.
Jóhanna Margrét Snorradóttir, Árni Björn Pálsson og Teitur Árnason, landsliðsknapar, flugu með hrossum til Liege og munu fylgja þeim alla leiðina til Oirschot. Elvar Þormarsson, Sara Sigurbjörnsdóttir og Erlendur Árnason járningamaður landsliðsins flugu út í morgun og munu taka á móti þeim. Restin af landsliðsknöpunum fer út á morgun.
Myndirnar tók Jóhanna Guðmundsdóttir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH