Undirbúningur fyrir HM með Glódísi Rún og HorseDay
Fyrir helgi fóru HorseDay í heimsókn á Sunnuhvoll til Glódísar Rúnar og tóku stöðuna fyrir ferðalagið út en kemur hún til með að keppa á hryssunni Sölku frá Efri-Brú í fimmgangi ungmenna.
„Okkur hjá HorseDay langaði að vita meira um undirbúninginn og ferlið sem tekur við eftir að maður veit fyrir víst að leiðin liggur út á heimsmeistaramót og fengum Glódísi til að gefa okkur innsýn inn í það. Við skelltum okkur í heimsókn á Sunnuhvoll og tókum spjallið um hvernig þær hafa verið að undirbúa sig og fengum betri innsýn inn í hvað það felur í sér að fara út á heimsmeistaramót.“
Myndbandið er hluti 1 af 2 en kemur seinni hlutinn út að heimsmeistaramótinu loknu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
„Einn fyrir alla og allir fyrir einn“