Fræðslufundur um fóðrun keppnishrossa

  • 15. mars 2013
  • Fréttir
Fræðslufundur um fóðrun keppnishrossa

„Nú er blásið til leiks á ný með fræðslufund númer tvö en honum var frestað þegar til stóð að halda hann í febrúar.  Sem fyrr er umfjöllunarefnið fóðrun keppnishrossa og samspil fóðrunar og þjálfunar.  Susanne Braun dýralæknir og Þorvar Þorsteinsson tamningamaður miðla af þekkingu sinni og reynslu í máli og myndum.  Sjálfur fundurinn verður haldinn í fundarsal á Búgarði mánudagskvöldið 18. mars kl. 20:00.  Aðgangseyrir er 500 krónur, allir velkomnir.

Í tengslum við umfjöllunarefnið og athuganir á standi hrossa verður í boði að taka blóðsýni til greiningar úr hrossum.  Susanne sér um það og verður á mánudeginum:

Kl. 16.00-17.00 í Breiðholtshverfinu, húsi Friðriks Kjartanssonar 

Kl. 17.00-18.00 í Lögmannshlíðarhverfinu, húsi Guðmundar Hjálmarssonar.

  

Áhugasamir mæti með hross í sýnatöku á viðkomandi stöðum en sýnatakan og greining á sýninu kostar 1.500 krónur á hest.  Susanne greinir niðurstöður og fer yfir þær með eigandanum.

 

ALLIR VELKOMNIR,“ segir í tilkynningu frá  stjórn HEÞ

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link