Tvö verkefni hlutu styrk þetta árið

  • 3. október 2023
  • Fréttir
Styrkir úr Stofnverndarsjóði hrossaræktar veittir fyrir árið 2023

Þann 15. september veitti Fagráð í hrossarækt styrki úr Stofnverndarsjóði og hlutu tvö verkefni styrk þetta árið. Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.

Háskólinn á Hólum hlaut styrk fyrir verkefnið „Líkamsþungahlutfall milli knapa og hesta á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins og tengsl við árangur, heilbrigði og endingu.“ en segir m.a. í umsögn ráðsins að rannsóknin sé afskaplega mikilvæg, sérstaklega í ljósi umræðu um svokallaða ”Samfélagssátt um notkun íslenska hestsins (SLO: Social licence to operate)”. Í því samhengi er vitnað til smæðar hans (þyngd og hæð á herðar) og þess hvort nota eigi hann til reiðar.

Hinn styrkurinn fór til verkefnis Matís „Framþróun erfðagreininga í þágu íslenska hestakynsins“ en í umsögn ráðsins er talað um mikilvægi slíkra ransókna og er hún afar mikilvæg varðandi framþróun erfðamats á íslenskum hrossum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link