FEIF leitar að ungu nefndarfólki

  • 4. október 2023
  • Tilkynning
Vantar ungt fólk í ræktunar-, íþrótta- og útreiðarnefnd.

FEIF leitar að ungu fóli, á aldrinum 20-26 ára, til að sitja í nefndum í þremur deildum innan FEIF.  Nefndarmenn hafa sama atkvæðisrétt og aðrir nefndarmenn og sitja í allt að 2 ár. Þú sækir um beint til FEIF og þarft ekki að fara í gegnum tilnefningarferli landssambandsins. Nánari upplýsingar eru í FEIF reglunum, kafla Y1.1.5

Umsókninni skal skila skriflega ásamt; ferilskrá, kynningarbréfi og tengiliða upplýsingar fyrir 2 meðmælendur.

Helst þarf umsækjandinn að vera kunnugur starfi FEIF, eftir að hafa verið á FEIF viðburði annað hvort sem þátttakandi eða sjálfboðaliði. Gert er ráð fyrir að nefndarfulltrúar mæti á tvo alþjóðlega fundi/ár, venjulega haldna í febrúar og október (greitt er fyrir aðilann).

Umsókn skal senda á [email protected] fyrir 20. desember 2023. Með samþykki stjórnar FEIF mun æskulýðsnefnd FEIF velja umsækjendur til að ganga til liðs við viðkomandi nefndir í byrjun febrúar 2024.

Það vantar aðila í eftirfarandi þrjár nefndir:

Ræktunarnefnd (e.Breeding Committee)
Útreiðanefnd (e.Leisure Riding Committee)
Íþróttanefnd (e.Sport Committee)

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link