Að venja hrossin við flugeldahljóð

  • 25. desember 2022
  • Fréttir
Það styttist í næstu áramót

Nú um áramótin verða margir ferfættir vinir okkar, og hestar þar á meðal, skelfingu lostin yfir flugeldum, og flugeldahljóðum sem þeir þekkja ekki og halda að séu kannski mjög hættuleg. Hljóð í flugeldum geta valdið mikilli skelfingu en stærsti hluti vandans er sá að hljóðin eru óþekkt og þau koma skyndilega. Dýrin eru forrituð frá náttúrunni til að gjalda varhug við því óþekkta sem kemur skyndilega. Þetta er hægt að laga eða fyrirbyggja vandann. Með því að beita aðferðum sem kallast desensitization eða habituation á fagmáli er hægt að venja dýrin við hljóðin, þar sem þau læra að ekkert skelfilegt gerist þegar hljóðin heyrast.

Flugeldahljod.com er nýr vefur sem býður hestaeigendum og gæludýraeigendum lausn til að venja dýrin á flugeldahljóð, svo það sé ólíklegra að þau fyllist hræðslu við slík hljóð um komandi áramót. Vefurinn www.flugeldahljód.com bjóða háþróaða lausn, ókeypis, hljóðskrár og leiðbeiningar, til að sem flest gæludýr og hestar á Íslandi megi eiga áhyggjulaus áramót.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link