Aðalfundur Félags hrossabænda

  • 19. nóvember 2010
  • Fréttir
Aðalfundur Félags hrossabænda

Aðalfundur Félags hrossabænda stóð yfir í dag í Sunnusal  Bændahallarinnar .Fundarsókn var þokkaleg og ágæt stemning í mönnum…

Á fundi Kynbótanefndar var til umræðu tillaga um breytingar á núverandi þröskuldum sem notast var við í sumar í dómum á tölti og stökki. Fyrir nefndinni lá tillaga þess efnis að þröskuldum yrði breytt þannig að munur á milli einkunnar fyrir hægt tölt og tölt geti verið 1,0 í stað 0,5 eins og verið hefur í sumar.Sama breyting yrði á einkunnum fyrir hægt stökk og stökk.
Þessi breyting var samþykkt eftir nokkra umræðu í nefndinni og fer hún þaðan inn á þingfund. Nánari fréttir verða fluttar af þessu síðar er fundi hefur verið slitið. +

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link