Aðalheiður Anna sigraði slaktaumatölt Meistaradeildar
Efstu knapar í slaktaumatölti Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum. Mynd: HGG
Nú er nýlega lokið keppni í slaktaumatölti T2 í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum sem fram fór í Fákaseli í Ölfusi. Það var Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Óskari frá Breiðstöðum sem bar sigur úr býtum með einkunnina 8,21 en hún var einnig efst eftir forkeppni með 7,97 í einkunn. Í öðru sæti var Árni Björn Pálsson á Kötlu frá Hemlu og þriðji varð Jakob Svavar Sigurðsson á Kopar frá Fákshólum.
Lið Top Reiter hlaut liðaplattann en liðið var með tvo knapa í A-úrslitum, þá Árna Björn Pálsson og Teit Árnason. Eftir gott gengi í slaktaumatöltinu hækkaði liðið sig líka úr 5. sæti í liðakeppninni yfir í 2. sætið með 92 stig. En efst í liðakeppninni er lið Hestvits / Árbakka með 105 stig og í því þriðja er lið Hjarðartúns með 85,5 stig.
Efstur í einstaklingskeppninni er Jakob Svavar Sigurðsson úr liði Hjarðartúns með 18 stig en saman í öðru sæti eru þau Jóhanna Margrét Snorradóttir úr liði Hestvits / Árbakka og Árni Björn Pálsson úr liði Top Reiter, bæði með 15 stig.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
| A úrslit | ||||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn | |
| 1 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Óskar frá Breiðstöðum | Jarpur/rauð-einlitt | Hörður | 8,21 | |
| 2 | Árni Björn Pálsson | Katla frá Hemlu II | Rauður/milli-stjörnóttglófext | Fákur | 7,88 | |
| 3 | Jakob Svavar Sigurðsson | Kopar frá Fákshólum | Grár/rauðureinlitt | Dreyri | 7,83 | |
| 4 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Bárður frá Melabergi | Grár/rauðurblesótt | Máni | 7,75 | |
| 5 | Teitur Árnason | Brúney frá Grafarkoti | Brúnn/milli-einlitt | Fákur | 7,62 | |
| 6 | Helga Una Björnsdóttir | Þoka frá Hamarsey | Bleikur/álóttureinlitt | Þytur | 7,21 |
| Tölt T2 | |||||
| Opinn flokkur – Meistaraflokkur | |||||
| Forkeppni | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Óskar frá Breiðstöðum | Jarpur/rauð-einlitt | Hörður | 7,97 |
| 2-3 | Teitur Árnason | Brúney frá Grafarkoti | Brúnn/milli-einlitt | Fákur | 7,80 |
| 2-3 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Bárður frá Melabergi | Grár/rauðurblesótt | Máni | 7,80 |
| 4 | Jakob Svavar Sigurðsson | Kopar frá Fákshólum | Grár/rauðureinlitt | Dreyri | 7,63 |
| 5 | Helga Una Björnsdóttir | Þoka frá Hamarsey | Bleikur/álóttureinlitt | Þytur | 7,57 |
| 6 | Árni Björn Pálsson | Katla frá Hemlu II | Rauður/milli-stjörnóttglófext | Fákur | 7,47 |
| 7-8 | Elin Holst | Frami frá Ketilsstöðum | Brúnn/milli-einlitt | Sleipnir | 7,43 |
| 7-8 | Hinrik Bragason | Kveikur frá Hrísdal | Brúnn/milli-einlitt | Fákur | 7,43 |
| 9 | Davíð Jónsson | Ólína frá Skeiðvöllum | Brúnn/milli-einlitt | Geysir | 7,33 |
| 10 | Matthías Leó Matthíasson | Doðrantur frá Vakurstöðum | Bleikur/fífil-einlitt | Trausti | 7,23 |
| 11 | Viðar Ingólfsson | Skál frá Skör | Brúnn/milli-einlitt | Fákur | 7,20 |
| 12 | Siguroddur Pétursson | Eldborg frá Haukatungu Syðri 1 | Jarpur/milli-einlitt | Snæfellingur | 7,10 |
| 13 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Doktor frá Dallandi | Rauður/milli-einlitt | Fákur | 7,07 |
| 14 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Njörður frá Feti | Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt | Skagfirðingur | 7,00 |
| 15 | Bergur Jónsson | Goði frá Ketilsstöðum | Brúnn/milli-einlitt | Sleipnir | 6,87 |
| 16 | Ásmundur Ernir Snorrason | Spyrna frá Strandarhöfði | Rauður/milli-einlitt | Geysir | 6,67 |
| 17 | Ragnhildur Haraldsdóttir | Katla frá Mörk | Jarpur/milli-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka | Sleipnir | 6,63 |
| 18 | Arnar Bjarki Sigurðarson | Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum | Brúnn/milli-einlitt | Sleipnir | 6,53 |
| 19 | Snorri Dal | Engill frá Ytri-Bægisá I | Rauður/milli-blesótt | Sörli | 6,50 |
| 20 | Sigurður Sigurðarson | Narfi frá Áskoti | Brúnn/milli-einlitt | Geysir | 6,47 |
| 21 | Janus Halldór Eiríksson | Blíða frá Laugarbökkum | Bleikur/fífil-einlitt | Ljúfur | 6,27 |
| 22 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Askur frá Enni | Brúnn/milli-einlitt | Fákur | 6,10 |
| 23 | Guðmundur Björgvinsson | Ópera frá Litla-Garði | Bleikur/fífil-einlitt | Fákur | 5,90 |
| 24 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Glymjandi frá Íbishóli | Brúnn/milli-einlitt | Sleipnir | 4,97 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH