Æska Suðurlands 2023
Mótaröðin Æska Suðurlands sem er samstarfsverkefni hestamannafélaganna Ljúfs, Háfeta, Sleipnis, Jökuls og Geysis mun fara fram í vetur á þremur stöðum; Flúðum, Selfossi og Rangárhöllinni Hellu á eftirfarandi dagsetningum:
Sunnudagur 5.mars á Flúðum og þar er keppt í:
- Barnaflokkur – þrígangur og smali
- Unglingaflokkur – fjórgangur V2 og smali
Sunnudagur 19.mars á Selfossi og þar er keppt í:
- Barnaflokkur – tölt T7 og fimi
- Unglingaflokkur – tölt T3 og fimi
Laugardagur 1.apríl í Rangárhöllinni Hellu og þar er keppt í:
- Barnaflokkur – fjórgangur V2 og hindrunarstökk
- Unglingaflokkur – fimmgangur F2 og hindrunarstökk
Upplýsingar um smalabraut, hindrunarstökksbraut og fimi má finna á fésbókarsíðu Æska Suðurlands. Þrír dómarar verða í hringvallargreinum.
Samanlagður sigurvegari verður verðlaunaður í bæði barnaflokki og unglingaflokki. Árangur í 4 bestu greinum telur til stiga hjá hverjum knapa.
Pollaflokkur veður á öllum stöðum og verður honum skipt uppí teymandi og ríðandi pollar. Hver staður mun útfæra pollaflokkin á sinn hátt með tilliti til hvort það verði leikir, þrautabraut eða sýndar gangtegundir.
Þátttökuréttur er opinn öllum þeim sem uppfylla aldur miðað við aldursár:
Pollaflokkur – 9 ára og yngri
Barnaflokkur – 10 ára til 13 ára
Unglingaflokkur – 14 ára til 17 ára
Allir að taka dagsetningarnar frá og taka þátt í þessu frábæra samstarfsverkefni.
Hver viðburður verður svo auglýstur nánar þegar nær líður.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH