Æskan og hesturinn
Mikið verður um að vera í Reiðhöllinni í Víðidal næstkomandi sunnudag, þann 7. apríl, þegar hestamenn á höfuðborgarsvæðinu halda hina geysivinsælu sýningu „Æskan og hesturinn“. Þetta er í 17. sinn sem sýningin er haldin en það eru hestamannafélögin Fákur, Hörður, Sprettur og Sörli sem koma að sýningunni að þessu sinni.
„Æskan og hesturinn“ er hluti af Hestadögum í Reykjavík og verður lokapunktur þeirrar hátíðar! Mikil vinna liggur að baki svona sýningu en þau 100 börn, unglingar og ungmenni sem taka þátt hafa eytt miklum tíma í sín atriði ásamt þjálfurum sínum. Eins og áður þá er öll vinna við sýninguna unnin í sjálfboðavinnu. Atriðin eru ýmis konar en meðal annars má finna töltslaufur,
smalakeppni, polla í grímubúningum og unga afreks knapa. Boðið verður upp á tvær sýningar, sú fyrri hefst kl. 13:00 en hin síðari kl. 16:00. Aðgangur er ókeypis, frábær skemmtun fyrir alla
fjölskylduna!

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH