Æskan og hesturinn á Akureyri
Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin á Akureyri laugardaginn 5. maí og hefst kl. 14. Í tilkynningu frá æskulýðsnefnd Léttis er auglýst eftir knöpum í opnunaratriði sýningarinnar:
„Við höfum áhuga á að fá tvo krakka frá hverju félagi í opnunaratriði. Skemmtilegt væri að krakkarnir væru í félagsbúningi og með félagsfána.
Viljum við biðja ykkur að senda upplýsingar um hverjir taki þátt frá hverju félagi ásamt uppl. um hesta.
Skráningarfrestur er til mánudagsins 30. apríl.
Senda skal upplýsingar um heiti atriðis og áætlaða lengd, nöfn knapa og nöfn og liti hesta.
Skráningu skal senda á netfangið [email protected]
Þeir sem óska eftir hesthúsplássi hafi samband við Höskuld í síma 892-5520
Varðandi æfingatíma, fyrir þá sem þess óska, er best að hafa samband við Sigmund reiðhallarstjóra í síma 898-5563
Veitingar:
Sjoppa verður á staðnum sem selur pylsur og slikkeri.
Eftir sýningaratriði munum við grilla fyrir krakkana hamborgara og fá allir þátttakendur fría borgara og gos. Foreldrar/forráðamenn geta fengið þetta keypt gegn vægu gjaldi.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH