Góð helgi fyrir Jolly

  • 22. febrúar 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Fláki og Þórður luku keppni í 7. sæti.

Jolly Schrenk er sannarlega að uppskera á Heimsbikarmótinu. Auk þess að hafa tryggt báða hesta sína í A- úrslit í slaktaumatölti í gær bætti hún um betur og sigraði B-úrslit fimmgangs rétt í þessu á Bjalla von Berlar. 

Sló hún við ekki lakari keppendum við en Fláka frá Blesastöðum og Þórði Þorgeirssyni sem margir höfðu talið sigurstranglegan, enda Þórður titilverjandi greinarinnar í ár. 

Arnar frá Blesastöðum og Agnar Snorri Stefánsson misstu af toppbaráttunni eftir laka sýningu á brokki. En Agnar Snorri mun mæta til leiks í A úrslit með Baldur vom Hrafnsholt síðar í dag.

6. Jolly Schrenk – Bjalli von Berlar 6,48
7,5 – 6,83 – 4,67 – 6,83 – 6
7. Þórður Þorgeirsson – Fláki frá Blesastöðum 6,33
7,00 – 5,17 – 5,33 – 5,17 – 7,33
8. Josefin Maier – Selur vom Hrafnsholt 6,29
6,00 – 6,17 – 6,5 – 6,33 – 6,5
9. Annette Overaas – Seimur frá Bræðratungu 6,26
6,33 – 5,5 – 6,33 – 5,83 – 6,83
10. Agnar Snorri Stefánsson – Arnar frá Blesastöðum 5,93
7,67 – 3,5 – 4,00 – 5,00 – 6,83

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link