Afrek Þóris

  • 10. júní 2013
  • Fréttir
Afrek Þóris

Þessa skemmtilegu frétt úr tímaritinu Degi um afrek ungs knapa árið 1991 fengum við innsenda.  Þess má geta að undan Sabínu eru þau Hekla frá Hólshúsum og Hrímbakur frá Hólshúsum.

„Þórir og Sabína heilluðu mótsgesti Á nýafstaðinni héraðssýningu kynbótahrossa á Melgerðismelum.  Vakti eftirtekt frammistaða ungs knapa frá Akureyri, Þóris Hólmgeirssonar, þegar hann sýndi hryssuna Sabínu fyrir dómi.

Þórir sem er 11 ára er knár knapi. Mjög ungur hóf hann keppni á hestum sem og bróðir hans Börkur. Þeir bræður hafa verið mjög áberandi í barna- og unglingaflokkum á mótum hestamanna og unnið til margra verðlauna. Börkur, eldri bróðirinn, á hryssuna Sabínu, sem er 10 vetra. Faðir Sabínu er Börkur frá Eyhildarholti og móðirinn er Drífa frá Bólu í Skagafirði. Þar sem eldri bróðirinn og eigandi Sabínu er við tamningar á íslenskum hrossum í Þýskalandi í sumar kom í hlut yngri bróðurins að sýna merina fyrir kynbótadómi. Þóri farnaðist verkið

það vel að Sabína fékk ættbókarfærsluna 8,06. Þegar tölur eru

skoðaðar yfir hæfileika Sabínu kemur í Ijós að hún hlaut 9,0 fyrir tölt sem brokk. Fyrir fegurð í reið fékk Sabína 8,5 og aðrar tölur stóðu í 8,00 nema fyrir skeið. Fyrir skeið var gefið 5,00 enda er Sabína skeiðlaus með öllu. Árangur Sabínu og Þóris er stórglæsilegur. Þórir er yngstur knapa á Íslandi sem komið hefur hrossi til fyrstu verðlauna fyrir kynbótadómi.

Ój.“

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link