Félag Tamningamanna Afreksknapar leika listir sínar!

  • 15. febrúar 2024
  • Fréttir
Afmælissýning Félags Tamningamanna er á morgun, laugardag

Afmælissýning Félags Tamningamanna fer fram laugardaginn 17.febrúar kl.11:00-17:00 í Lýsishöllinni í Fák í Víðidal. Hestavöruverslunin Ástund er bakhjarl sýningarinnar og gerir félaginu kleyft að bjóða hestamönnum til veislunnar þar sem aðgangur er ókeypis.

Tamningameistarinn Mette Mannseth mun vera með sýnikennslu þar sem hún fjallar um jafnvægi og samskipti.

Umfjöllunaratriði heimsmeistarans Jóhönnu Margrétar Snorradóttur verður léttleiki.

Systkinin Steinar og Sara Sigurbjörnsbörn verða með sameiginlega sýnikennslu og segja okkur frá Equinimity.

Rúsínan í pylsuendanum verður svo sýnikennsla Eyrúnar Ýrar Pálsdóttur og Teits Árnasonar sem ber heitið Gæðingasýning.

Afmælissýning sem enginn hestamaður má láta framhjá sér fara!

Hvetjum hestamenn til að taka daginn frá og gleðjast saman

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link