Áhrif þyngdar knapa á álag og hreyfingar hesta
Fræðslunefnd Skagfirðings stendur fyrir áhugaverðum fyrirlestri í Tjarnarbæ á Sauðárkróki á morgun, þriðjudaginn 8. mars kl. 20:00. Víkingur Gunnarsson og Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir verða með fyrirlesturinn en sagt verður frá rannsóknum um áhrif þyngdar knapa á álag og hreyfingar hesta sem og um þróun aðferða til að meta gæði gangtegunda.
Frítt er inn á fyrirlesturinn.
Upplýsingar um viðburðinn HÉR
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV