Áhugamannadeildin 2021 á Alendis TV

  • 24. nóvember 2020
  • Fréttir

Alendis TV og Áhugamannadeild Equsana segja stolt frá því að hafa komið á samstarfssamningi fyrir tímabilið 2021. Þar af leiðandi verða öll mót Áhugamannadeildar sýnd í beinni útsendingu á stöð Alendis TV. Þetta er sjöunda ár Áhugamannadeildarinnar og hún hefur verið gífurlega vinsæl, þar keppast 65 knapar í 13 liðum bæði í einstaklingskeppni og liðakeppni. Við teljum það mikilvægt og viðeigandi framfararskref að bjóða upp á deildina núna í beinni útsendingu til að deila þessum skemmtilegu kvöldum með öllum landsmönnum, sem og erlendum hestavinum.

Dagsetningar fyrir tímabilið 2021

Fimmtudagur 4 febrúar – Fjórgangur

Fimmtudagur 18 febrúar – Fimmgangur

Fimmtudagur 4 mars : Slaktaumatölt

Fimmtudagur 18 mars : Tölt – lokamótið

Við erum ofboðslega spennt fyrir vetrinum, það verður frábær dagskrá hjá okkur á Alendis TV svo að hesta áhugamönnum ætti svo sannarlega ekki að leiðast heima í sófa. Við hvetjum ykkur öll til að fylgja Alendis TV á samfélagsmiðlunum Instagram og Facebook – þar sem meðal annars er hægt að sjá hvað er næst á dagskrá hjá okkur!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link