Áhugamannamót Íslands 2022
Hestamannafélagið Geysir og Hestamannafélagið Dreyri hafa gert með sér samkomulag um að Dreyri muni halda Áhugamannamót Íslands 2022 á sínu félagssvæði við Akranes. Mótið mun fara fram 15.-17.júli 2022
Keppt er í eftirfarandi greinum T3, T4, V2, F2, T7 og V5. Einnig í gæðingaskeiði og 100m skeiði.
Allir þeir knapar sem hafa náð 22 ára aldri (á árinu) og eldri og hafa EKKI keppt í meistaraflokki á síðastliðnum 2 árum hafa þátttökurétt á mótinu.
Gaman verður að fylgjast með þessu stærsta móti í hestaíþróttum á hverju sumri, eingöngu ætlað áhugamönnum fara fram á nýjum stað.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH