Áhugamannamót Íslands
Dagana 21-23.júlí nk. mun Áhugamannamót Íslands fara fram á félagssvæði hestamannafélagsins Spretts í Garðabæ og Kópavogi.
Samkvæmt reglum LH skal eingöngu keppt í 1. flokki á þessu móti. Því hafa mótshaldarar í samráði við LH að á sama tíma verður Áhugamannamót Spretts haldið. Þar verður keppt í 2. og 3. flokki. Mótin verð „keyrð“ saman í dagskrá en í Sportfeng eru þetta aðskilin mót, biðjum við keppendur um að gefa því gaum við skráningu. Skráning er opin í Sportfeng. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Hér fyrir neðan er hægt að sjá flokkana sem eru í boði.
Fjölmagir styktaraðilar koma að mótinu og verða vegleg verðlaun í boði í öllum flokkum. Gisting í smáhýsum, reiðtygi, bætiefni fyrir hross, rekstarþjálfun, reiðkennsla, út að borða, fóðurbætir ofl ofl.
HÉR er tengill á viðburðinn á Facebook
Áhugamannamót Íslands og Ástund/Tommy Hilfilger
Þátttökurétt á Áhugamannamóti Íslands hafa allir sem náð hafa 22 ára aldri á keppnisárinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþróttakeppni á síðastliðnum 5 árum.
Keppt verður í 1.flokki. Hér keppa knapar með meiri keppnisreynslu.
Keppt veðrur í: Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Gæðingaskeið PP1, Fjórgangur V5, Tölt T7 einnig verður keppt í Gæðingakeppni, A og B flokki.Áhugamannamót Spretts og Bílabankans.
Keppt verður í 2. flokki. Hér keppa knapar með minni keppnisreynslu .
Keppt verður í : Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Fjórgangur V5, Tölt T7.
Keppt verður í 3. flokki Hér keppa knapar sem er byrjendur í keppni, fólk sem hefur td eingöngu keppt á vetrarleikum eða minni mótum.
Keppt verður í : Tölt T7 og Fjórgangur V5
„Við hvetjum alla áhugasama keppendur um að taka helgina frá og taka þátt á þessu skemmtilega móti. Við bendum keppendum á nýjar reglur varðandi beislabúnað í keppni https://www.lhhestar.is/is/frettir/hvad-ma-eiginlega“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts