Áhugamannamót Íslands verður í júlí

  • 8. júní 2023
  • Fréttir
Áhugamannamót Spretts verður haldið á sama tíma og því fleiri flokkar í boði.

Dagana 21-23.júlí nk mun Áhugamannamót Íslands fara fram á félagssvæði hestamannafélagsins Spretts í Garðabæ og Kópavogi. Samkvæmt reglugerð sem samþykkt var á síðasta LH þingi þá á eingöngu að bjóða upp á 1. flokki. Hestamannafélagið Sprettur ákvað því í samráði við LH að halda á sama tíma Áhugamannamót Spretts og verður boðið upp á 2. og 3. flokk.

Mótin verð keyrð saman í dagskrá en í Sportfeng eru þetta aðskilin mót og eru keppendur beðnir um að gefa því gaum við skráningu.

„Við hvetjum alla áhugasama keppendur um að taka helgina frá og taka þátt á þessu skemmtilega móti,“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Spretti.

Skráning er opin í Sportfeng. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Veglegir vinningar verða í öllum flokkum, reiðkennsla, út að borða, fóðurbætir ofl ofl.

Áhugamannamót Íslands :

Þátttökurétt á Áhugamannamóti Íslands hafa allir sem náð hafa 22 ára aldri á keppnisárinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþóttakeppni á síðastliðnum 5 árum.

Keppt verður í 1.flokki: Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Gæðingaskeið PP1, Fjórgangur V5, Tölt T7 einnig verður keppt í Gæðingakeppni, A og B flokki.

Áhugamannamót Spretts:

Keppt verður í 2. flokki : Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Fjórgangur V5, Tölt T7.

Keppt verður í 3. flokki : Tölt T7 og Fjórgangur V5

Viðburðurinn á Facebook

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link