“Allir knaparnir úr okkar hesthúsi”
Hinrik Bragason á Lukku-Láka frá Stóra-Vatnsskarði í Meistaradeildinni
Glöggt Meistaradeildar áhugafólk tók eftir því þegar það las viðtalið við Pál Braga og Kristófer sem birtist á Eiðfaxa á dögunum að Jóhann Kristinn Ragnarsson hefur skipt um lið en hann var áður í liði Hestvits/Árbakka. Blaðamaður ákvað að heyra í liðsstjóra Hestvits/Árbakka, Hinriki Bragasyni, og taka stöðuna á liðinu.
“Deildin leggst vel í okkur. Undirbúningur er hafinn en það eru einhverjar vikur síðan að við fórum að spá í hvaða hestar væru líklegir til að taka þátt í þessu og eru komnir af stað. Það er rosaleg áskorun þegar við erum öll að keppa á hestum úr sama hesthúsinu,” segir Hinrik en liðsmenn í liðinu eru þau Hulda Gústafsdóttir, Gústaf Ásgeir Hinriksson, Jóhanna Margrét Snorradóttir og Pierre Sandsten Hoyos. Jóhanna Margrét er að koma aftur inn í liðið en hún fór í barneignarleyfi. Hún keppti þó, eftirminnilega, í töltinu sem villiköttur fyrir liðið og vann greinina í fyrra.
“Það þarf að halda vel á spöðunum nú þegar allir knaparnir eru úr okkar hesthúsi. Yfirleitt eru einn eða tveir sem eru líklegir til að gera mjög vel og það þarf að vanda vel til verka til að koma fram með þrjá mjög góða. Pierre er búsettur erlendis svo við höfum hjálpað honum að hesta sig. Við metum hann gríðarlega mikils sem knapa og finnst hann skemmtileg viðbót við liðið. Það er auðvitað ekki hægt að fara inn í svona deild nema með einhvern hestakost á hendinni og er hann búinn að vera kaupa sér einhverja hesta fyrir deildina.”
Það eru kannski ekki allir sem vita en Hinrik Bragason er einn af stofnfélögum deildarinnar. Deildin fór fyrst í gang 2001 og 2002 en í sögu deildarinnar er þessara ára minnst sem tilrauna ára. Félag var síðan stofnað um deildina árið 2006 þegar hún hóf aftur göngu sína og var Hinrik einn af átta stofnfélögum hennar.
“Mér hefur fundist Meistaradeildin þróast vel. Mér hefur fundist hún vera góður stökkpallur fyrir yngri knapa sem eru að byrja sanna sig. Þeir sem eru að skara fram úr í ungmennaflokki fá tækifæri í að spreyta sig. Mér finnst það mikilvægt. Við vorum til að byrja með alltaf með unga knapa í okkar liði en þetta er mjög mikilvægt partur af deildinni að yngsta afreksfólkið okkar fái tækifæri til að koma þarna fram.”
Aðspurður hvernig hann sjái framtíð Meistaradeildarinnar fyrir sér er Hinrik bjartsýnn. Deildin sé komin til að vera og þróun hennar hefur verið jákvæð síðustu árin.
“Meistaradeildin hefur gert heilmargt fyrir hestamennskuna og líka reiðmennskuna. Fólk hefur þurft að leggja miklu meira á sig, þú ert í miklu meira návígi og þú þarft að vera tilbúinn mikið fyrr á tímabilinu. Það eru þessir hlutir sem hafa verið reiðmennskunni mikið til bóta. Deildin sjálf er í stöðugri endurskoðun hvað hún geti gert betur fyrir alla hagsmunaaðila hennar, knapa, fólkið sem er að fylgjast með og liðseigendur. Það eiga alltaf einhverjar litlar breytingar sér stað frá ári til árs, áherslubreytingar sem eru óhjákvæmilegar, og maður tekur endilega ekki mikið eftir þeim. En deildin er orðið svolítið eins og aðrar íþróttir tökum sem dæmi fótboltann. Þar er búið að finna gott regluverk og það er keyrt á því, þetta er eins með deildina. Breytingar bara til að gera breytingar eru endilega ekki að fara gera neitt gott,” segir Hinrik og bætir við að deildin hafi verið ótrúlega lánsöm með allt þetta frábæra fólk sem hefur haldið utan um deildina og sinnt framkvæmd hennar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH