Allra Sterkustu komið inn á EiðfaxaTV

  • 5. apríl 2026
  • Fréttir
Stærsti fjáröflunarviðburður íslenska landsliðsins í hestaíþróttum

Allra sterkustu, stærsti fjáröflunarviðburður íslenska landsliðsins í hestaíþróttum, fór fram í gær í reiðhöllinni í Sörla. EiðfaxiTV var á staðnum og tók upp viðburðinn og geta áskriftendur EiðfaxaTV nú horft á hann.

Var vel látið af viðburðinum, fjöldinn allur af fólki var mætt í stúkuna og var kátt meðal manna. Keppt var í slaktaumatölti, fjórgangi, fimmgangi og stóðhestakeppni. Hvarmur frá Brautarholti vann stóðhestakeppnina en knapi var Hanna Rún Ingibergsdóttir og hlutu þau 8,97 í einkunn.

Arnhildur Helgadóttir og Frosti frá Hjarðartúni unnu slaktaumatöltið, fimmganginn vann Árni Björn Pálsson og Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 og fjórganginn Jakob Svavar Sigurðsson og Hrafn frá Oddsstöðum I.

Ýmislegt annað var á dagskránni m.a. var U-21 hópurinn með atriði, Fjóla og Hrímnir léku listir sínar og voru þau Loftur frá Kálfsstöðum og Barbara Wenzl sem lokuðu sýningunni.

HÉR ER HÆGT AÐ HORFA Á ALLRA STERKUSTU Á EIÐFAXATV

Stóðhestakeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Hvarmur frá Brautarholti Hanna Rún Ingibergsdóttir 8,97
2 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk Glódís Rún Sigurðardóttir 8,84
3 Hylur frá Flagbjarnarholti Teitur Árnason 8,71
4 Kulur frá Hafsteinsstöðum Védís Huld Sigurðardóttir 8,56
5 Náttfari frá Varmalæk Þórarinn Eymundsson 8,51

Slaktaumatölt
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni 8,54
2 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni 8,08
3 Sigurður Vignir Matthíasson Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 7,71
4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hamar frá Varmá 7,08
5 Glódís Rún Sigurðardóttir Seðill frá Dimmuborg 7,04

Fjórgangur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jakob Svavar Sigurðsson Hrafn frá Oddsstöðum I 7,77
2 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi 7,67
3-4 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,60
3-4 Ásmundur Ernir Snorrason Stimpill frá Strandarhöfði 7,60
5 Sigurður Sigurðarson Þróttur frá Hvammi 7,30
6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Særún frá Sægarði 7,07

Fimmgangur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Árni Björn Pálsson Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 7,83
2 Brynja Kristinsdóttir Regína frá Skeiðháholti 7,48
3 Helga Una Björnsdóttir Karl frá Kráku 7,00
4 Guðmundur Björgvinsson Gandi frá Rauðalæk 6,86
5 Jóhanna Margrét Snorradóttir Frontur frá Finnastöðum 6,64
6 Kristján Árni Birgisson Vísir frá Ytra-Hóli 6,52

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link