Alls hlutu 297 stóðhestar fullnaðardóm í vor

  • 27. júní 2022
  • Fréttir

Fróði frá Flugumýri var efsti fjögurra vetra hesturinn í fyrra og stendur nú efstur í fimm vetra flokki stóðhesta. Fróði er undan Hring frá Gunnarsstöðum og Fýsn frá Feti en eigandi, ræktandi og sýnandi er Eyrún Ýr Pálsdóttir Mynd: Nicki Pfau

Vorsýningar 2022

Vorsýningum lauk um miðjan júni en alls voru 853 hross sýnd á ellefu vorsýningum. Sýnt var á Gaddstaðaflötum á Hellu (4 sýningar), í Spretti í Kópavogi (1), Sörlastöðum í Hafnarfirði (2), Brávöllum á Selfossi (1) og á Hólum í Hjaltadal (3). Stærstu sýningarnar voru á Hellu og í Hafnarfirði.

Af þessum 853 hrossum sem hlutu fullnaðardóm voru 297 stóðhestar.  Meðalaldur þeirra er 5,83 ár. Elstu hestarnir voru 9 vetra og voru þeir 5 talsins. 61 fjögurra vetra stóðhestar hlutu fullnaðardóm.

Af þessum 297 stóðhestum hlutu 141 fyrstu verðlaun eða um 51%.

46 stóðhestar voru sýndir tvisvar sinnum í fullnaðardóm í vor og af þessum 46 voru sjö sýndir tvisvar í sömu vikunni enn á sitthvorri sýningunni. Meðalaldur þeirra stóðhesta sem voru sýndir tvisvar sinnum í fullnaðardómi í vor er 5,36 ár.

Skipting á fjölda stóðhesta sem hlutu fullnaðardóm í vor eftir aldri

Aldur

Fjöldi

9 vetra

5

8 vetra

19

7 vetra

39

6 vetra

55

5 vetra

74

4 vetra

61

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link