Alur hinn alhvíti

  • 28. mars 2021
  • Fréttir

Alur frá Ártúnum. Mynd: Páll Imsland

Páll Imsland skrifar um merkilegt litaafbrigði í Eiðfaxa Vetur

Eiðfaxi Vetur er í prentsmiðju þessa dagana og kennir ýmissa grasa í efni blaðsins að þessu sinni. Á meðal greinarhöfunda er Páll Imsland sem skrifar um hestinn Al frá Ártúnum en Alur þessi fæddist alhvítur sem menn töldu að væri ekki mögulegt í íslenska hrossastofninum þar sem hvítu hrossin fæðast jafnan í litum en grána síðan með aldri. Alhvítir hestar eða albinóar eru aukinheldur afar fágætir í íslenska hrossastofninum en þó gætu verið blikur á lofti í þeim efnum eins og fram kemur í grein Páls:

„Það má búast við því að alhvítum og nærri alhvítum hrossum fjölgi eitthvað á næstu árum. Ástæðan er sú að í stofninum hafa undanfarið verið vinsæl undaneldishross sem bera þær skjóttu erfðir sem stuðla að myndun alhvíts við réttar paranir og undan og út af þeim hefur verið ræktað töluvert áfram. Hér vísa ég ekki síst til arfblendinna slettuskjóttra stóðhesta eins og Glampa frá Vatnsleysu, Hróðs frá Refsstöðum og fleiri slíkra og skjóttra afkomenda Álfadísar frá Selfossi, auk annarra minna þekktra hrossa. Það er því farið að lúra í stofninum talsverður möguleiki á því að fram komi erfðablöndur eins og þeir Alur og Lýsingur bera.“

Eiðfaxi Vetur ætti að berast áskrifendum fyrir páska auk þess að vera til sölu í öllum helstu hestavöruverslunum landsins. Tryggðu þér þína áskrift að Eiðfaxa hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link