Annað kvöldið í KEA mótaröðinni – Fjórgangur
Næstkomandi fimmtudag hefst annað kvöldið af fjórum í KEA mótaröðinni í Top Reiterhöllinni á Akureyri. Keppt verður í fjórgangi og hefst keppnin klukkan 20:00 fimmtudaginn 25. febrúar. Húsið opnar kl. 19:30.
Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 22. febrúar á netfangið [email protected]. Til að skráning teljist gild þarf að koma fram nafn og kennitala knapa og nafn og is-númer hests. Skráningargjöld 2500 kr. á að greiða inn á reikning 0302 – 26 -15840 kt: 430269-6749 og setja nafn knapa sem skýring. Síðasti greiðslufrestur er miðvikudagurinn 24. febrúar.
Aðgangseyrir er 500 krónur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH