Annað mót er keppni í slaktaumatölti
Komið er að öðru mótinu í B.E meistarmótaröð æskunnar. Keppt verður í slaktaumatölti 12. mars
ATH. Ný dagsetning, ákveðið hefur verið að færa slaktaumatöltið í B.E meistarmóti æskunnar yfir á laugardaginn 12 .mars, sama dag og G. Hjálmarssondeildin fer fram.
Einnig hefur verið ákveðið í ljósi aðstæðna að færa skeiði yfir á lokamótið.
Keppt verður í barnaflokk T4, Unglingaflokk T2 og Ungmennaflokk T2.
Skráningargjald er 3.500 kr í alla flokka, leyfðir eru 2 hestar á knapa.
Skráning er hafin á www.sportfengur.com
Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH