Árborg með 9,5 fyrir tölt á Hvammstanga
Nú fer fram síðsumarssýning á Hvammstanga þar sem 66 hross eru skráð til dóms. Eftir fordóma hafa þrjár hryssur hlotið yfir 8 í aðaleinkunn.
Hæfileikahryssan Árborg frá Miðey hefur hlotið hæstu aðaleinkunn það sem af er sýningu, 8,19. Árborg er 8 vetra og hefur átt góðu gengi að fagna á keppnisbrautinni á síðustu misseri ásamt knapa sínum, Jakobi Svavari Sigurðssyni. Þau sigruðu m.a. gæðingafimikeppni Meistaradeildarinnar sl. vetur, urðu í 3. sæti í töltkeppni Reykjavíkurmeistaramótsins og á Íslandsmótsins og í því fjórða á Landsmóti. Í kynbótadómi fékk hún 7,88 fyrir sköpulag og 8,29 fyrir hæfileika, þar af einkunnina 9,5 fyrir tölt, hægt tölt og vilja og geðslag og einkunnina 9 fyrir brokk og fegurð í reið.
Þá hefur 6 vetra hryssa að nafni Mirra frá Vindheimum, undan Tindi frá Varmalæk og Millu frá Höfnum, hlotið aðaleinkunnina 8,09 og er sem stendur með aðra hæstu einkunn sýningarinnar. Fyrir sköpulag hlaut hún 8,20 og fyrir hæfileika 8,02.
Ósk frá Árdal, 5 vetra, undan Gusti frá Hólum og Ársól frá Mið-Fossum, hefur hlotið 8,04, þar af 7,70 fyrir byggingu og 8,27 fyrir hæfileika.
Yfirlitssýningin hefst í fyrramálið, fimmtudag, kl. 9 og reikna má með að hún standi fram að hádegi að er fram kemur á heimasíðu Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH