Árleg fundarferð um landið.
Almennir fundir í fundarröð Félags hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hestamanna halda áfram og verða á eftirfarandi stöðum:
15. mars miðvikudagur Suðurland – Hliðskjálf á Selfossi kl. 20:00.
Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:
· Félagskerfi Félags hrossabænda.
· Markaðsmál.
· Þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt og dómskala.
· Nýjungar í skýrsluhaldinu.
· Nýjungar í kynbótadómum.
Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfunni.
Með fulltrúum Félags hrossabænda og fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Þorvaldi Kristjánssyni, ábyrgðarmanni í hrossarækt verður Lárus Á. Hannesson formaður Landssambands Hestamannafélaga og munu þeir verða frummælendur fundanna.
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH