Arna Ýr „Bjartasta vonin“
Á uppskeruhátíð Fáks er venja að heiðra ungan og efnilegan knapa úr röðum ungmenna og fær sá knapi að bera titilinn Bjartasta vonin næsta árið. Knapi sem sýnir góða ástundun, nær góðum keppnisárangri og sýnir íþróttamannslega framkomu, bæði á keppnisvellinu og utan hans. Það kom engum á óvart að Arna Ýr Guðnadóttir skildi hljóta titilinn í ár en kannski má segja er hún sé hætt að vera efnileg því hún sannaði það í sumar að hún er orðin flinkur og fær knapi. Arna Ýr náði frábærum árangri í ár og vann hún það frækilega afrek að landa Íslandsmeistaratitlum í tölti, fjórgangi og var einnig samanlagður sigurvegari í fjórgangsgreinum í ungmennaflokki. Til hamingju með það Arna Ýr og það er alveg ljóst að sigurganga hennar á keppnisvellinum er rétt að byrja.
Keppnisárangur Örnu Ýrar 2011:
Íslandsmót yngri flokka
Ungmennaflokkur
Tölt 1 sæti Íslandsmeistari
4-g 1 sæti Íslandsmeistari
Samanlagður sigurvegari í 4-g greinum Íslandsmeistari
Fimi 3 sæti
Reykjavíkurmeistaramót
Ungmennaflokkur
Tölt 1 sæti Reykjavíkurmeistari
4-g 2-3 sæti Reykjavíkurmeistari
Landsmót
Ungmennaflokkur
B-úrslit 13 sæti
Gæðingamót Fáks
Ungmennaflokkur
A-úrslit 7 sæti
Suðurlandsmót
Ungmennaflokkur
Tölt 3 sæti
4-g 7 sæti
Minni mót
Barkamótið í Reiðhöllinni í Víðidal
Opinn flokkur tölt (fullorðnir)
1 sæti
Bleika töltið í Reiðhöllini í Víðidal
Opinn flokkur tölt (fullorðnir konur)
1 sæti
Arna Ýr Guðnadóttir og Fylkir frá Fróni
Líflandsmót í Reiðhöllinni í Víðidal
Ungmennaflokkur
Fjórgangur 1 sæti
Íþróttamót Harðar
Ungmennaflokkur
Fjórgangur 4 sæti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH