Arnhildur og Frosti efst á stöðulista ársins í slaktaumatölti
Á vefsíðu FEIF hefur stöðulisti ársins (e. annual ranking) í slaktaumatölti T2 verið birtur. Listinn byggir á árangri knapa og hesta í forkeppni á alþjóðlegum mótum (WorldRanking) á árinu, þar sem tvær hæstu einkunnir parsins eru lagðar saman og meðaltal þeirra ræður röðuninni.
Efst á stöðulistanum að þessu sinni eru Arnhildur Helgadóttir og Frosti frá Hjarðartúni með glæsilega meðaleinkunn upp á 8,600. Þau áttu frábært tímabil en hæstu tvær einkunnir þeirra í forkeppni voru 8,70 og 8,50.
Í öðru sæti fylgir þýska parið Lena Maxheimer og Tvistur frá Kjarna með meðaleinkunnina 8,550 (8,57 og 8,53). Lena heldur því áfram að skipa sér í fremstu röð á alþjóðavettvangi, en hún trónir einnig á toppi árslistans í fimmgangi F1.
Í þriðja til fjóra sæti deila tvö pör nákvæmlega sömu meðaleinkunn upp á 8,40: Jakob Svavar Sigurðsson á Hrefnu frá Fákshólum og Stefan Schenzel á Ósk frá Stað.
Íslenskir knapar í stuði
Íslenskir knapar skipa sex af efstu tíu sætum listans. Helga Una Björnsdóttir og Björt frá Kráku skipa 5. sætið með 8,200 í meðaleinkunn (8,23 og 8,17). Hans-Christian Løwe á Hrannari fra Vivildgård situr í 6. sæti með 8,150 og svissneski knapinn Oliver Egli á Hákoni frá Báreksstöðum er í 7. sæti með 8,135.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum eru í áttunda sæti með 8,050. Gústaf Ásgeir Hinriksson sýnir mikinn styrk og á tvo hesta inni á topp tíu; Gými frá Skúfslæk í 9. sæti með 8,020 og Krafla frá Flagbjarnarholti í 10. sæti með 8,015.
Topp 10 á stöðulista ársins í slaktaumatölti T2:
1. Arnhildur Helgadóttir / Frosti frá Hjarðartúni (IS) – 8,600 (8,70 ; 8,50)
2. Lena Maxheimer / Tvistur frá Kjarna (DE) – 8,550 (8,57 ; 8,53)
3.–4. Jakob Svavar Sigurðsson / Hrefna frá Fákshólum (IS) – 8,400 (8,57 ; 8,23)
3.–4. Stefan Schenzel / Ósk frá Stað (DE) – 8,400 (8,53 ; 8,27)
5. Helga Una Björnsdóttir / Björt frá Kráku (IS) – 8,200 (8,23 ; 8,17)
6. Hans-Christian Løwe / Hrannar fra Vivildgård (DK) – 8,150 (8,30 ; 8,00)
7. Oliver Egli / Hákon frá Báreksstöðum (CH) – 8,135 (8,17 ; 8,10)
8. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Flóvent frá Breiðstöðum (IS) – 8,050 (8,17 ; 7,93)
9. Gústaf Ásgeir Hinriksson / Gýmir frá Skúfslæk (IS) – 8,020 (8,37 ; 7,67)
10. Gústaf Ásgeir Hinriksson / Kraflar frá Flagbjarnarholti (IS) – 8,015 (8,13 ; 7,90
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing