1. deildin í hestaíþróttum Arnhildur og Ölur efst í fimmgangnum

  • 5. apríl 2024
  • Fréttir

Arnhildur og Ölur fra Reykjavöllum. Ljósmynd: Facebooksíða 1.deildar

Fimmgangur í 1.deildinni í hestaíþróttum
Arnhildur Helgadóttir heldur áfram að gera það gott í 1.deildinni í Hestaíþróttum. Hún sigraði keppni í fimmgangi á Öl frá Reykjavöllum með 7,00 í einkunn í úrslitum. Í öðru sæti varð liðsfélagi hennar, Snorri Dal, á Gimsteini frá Víðinesi 1 með 6,79 og í því þriðja varð Sanne Van Hezel á Völundi frá Skálakoti með 6,71 í einkunn.
Stigahæsta lið kvöldsins var lið Sportfáka.

Snorri Dal, Arnhildur Helgadóttir og Anna Björk Ólafsdóttir, liðsmenn Sportfáka. Ljósmynd: Facebooksíða 1.deildar

Arnhildur Helgadóttir

Næsta mót í deildinni er áætlað þann 18.apríl þegar keppt verður í 100 metra skeiði og tölti.
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Arnhildur Helgadóttir Ölur frá Reykjavöllum 6,80
2 Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi 1 6,60
3-4 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Esja frá Miðsitju 6,57
3-4 Sanne Van Hezel Völundur frá Skálakoti 6,57
5 Birna Olivia Ödqvist Sirkus frá Torfunesi 6,50
6 Haukur Bjarnason Abel frá Skáney 6,33
7 Sigurður Halldórsson Gustur frá Efri-Þverá 6,27
8 Ríkharður Flemming Jensen Myrkvi frá Traðarlandi 6,23
9 Elvar Logi Friðriksson Teningur frá Víðivöllum fremri 6,07
10-12 Reynir Örn Pálmason Fjalar frá Margrétarhofi 6,03
10-12 Hákon Dan Ólafsson Geisli frá Gafli 6,03
10-12 Hermann Arason Ósk frá Vindási 6,03
13 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Greifi frá Söðulsholti 5,90
14-15 Telma Tómasson Forni frá Flagbjarnarholti 5,87
14-15 Kári Steinsson Sigurrós frá Lerkiholti 5,87
16 Katrín Sigurðardóttir Haukur frá Skeiðvöllum 5,83
17-18 Anna S. Valdemarsdóttir Lávarður frá Egilsá 5,77
17-18 Játvarður Jökull Ingvarsson Lávarður frá Ekru 5,77
19 Anna Björk Ólafsdóttir Greifi frá Grímarsstöðum 5,70
20 Sigríður Pjetursdóttir Hrund frá Hólaborg 5,60
21 Rakel Sigurhansdóttir Blakkur frá Traðarholti 5,23
22 Vilborg Smáradóttir Sónata frá Efri-Þverá 5,03
23 Súsanna Sand Ólafsdóttir Bergstað frá Þingbrekku 4,33
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Arnhildur Helgadóttir Ölur frá Reykjavöllum 7,00
2 Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi 1 6,79
3 Sanne Van Hezel Völundur frá Skálakoti 6,71
4 Birna Olivia Ödqvist Sirkus frá Torfunesi 6,64
5 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Esja frá Miðsitju 6,60
6 Haukur Bjarnason Abel frá Skáney 6,50

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar